Stemmningin fyrir Klaustur virðist vera engu lík. Vefþjónninn fékk að finna fyrir því í gærkvöldi þegar menn voru hvað spenntastir eftir að klukkan myndi slá tíu. Þjónninn lifði þetta af og skráningin gekk almennt vel fyrir sig, allavega streymdu inn 85 lið á fyrstu 20 mínútunum, þannig það var svipað spennandi að horfa á skráningarnar streyma inn, eins og að horfa á startið á Klaustri 2004.
Helgi Már Gíslason náði holuskotinu og er því fyrstur á ráslínu en hann var 5 sekúndum á undan Hákoni Inga Sveinbjörnssyni að skrá sig.
Nú eru 306 keppendur skráðir.
Ef þú hefur gleymt að setja nafn keppenda í athugasemdir, framsendu þá kvittunina sem þú fékkst á netfangið vefstjori@motocross.is og settu nöfn keppendanna efst í tölvupóstinn.
Keppendum er bent á að lágmarksstærð hjóla er 125cc tvígengis og 250cc fjórgengis. Aldurstakmark á þessi tæki er 15 ára.
306 keppendur = 153 lið ?
Það er ekki alveg svo einfalt. Sumir eru í þriggja manna liði og sumir í járnkallinum. Reyndar eru mun færri 3ja manna lið en ég bjóst við.
2ja manna er langvinsælast.
hvar getur maður séð hvort maður sé skráður í keppnina eða hvort þetta hafi gengið í gegn??
Þú ert skráður í keppnina ef þú fékkst tölvupóst frá korta@korta.is þar sem stendur: Pöntun er móttekin.
Annars birtum við lista yfir keppendur eftir nokkra daga
Er hægt að bæta við keppanda í liðið hjá sér núna?