VÍK hefur ákveðið í samráði við landeigendur að takmarka fjölda keppenda við töluna 400 talsins. Þannig að þegar fjöldinn fer í 400, að þá verður lokað á skráningu. Ef þú hefur ekki gert upp hug þinn, að þá er ekki eftir neinu að bíða því nú þegar eru skráðir hátt í 350 keppendur og 180 lið. Þannig að gera má ráð fyrir að takmarkinu náist í kvöld eða á morgun. VÍK þakkar hjólamönnum áhugann og mun birta lista yfir keppendur og rásnúmer í kringum páskana.