Toni Bou (Beta) sigraði fimmtu umferð heimsmeistarakeppninnar í trial sem haldin var í Barcelona um helgina. Albert Cabestany (Sherco) varð annar og Adam Raga (Gas Gas) var þriðji. Þar með hefur Cabestany (Sherco) saxað á það forskot sem Raga (Gas Gas) hafði í fyrsta sæti. Einnig er útlit fyrir að Toni Bou (Beta) blandi sér í slaginn. Hægt er að horfa á keppnirnar á Eurosport 2 á fjölvarpinu. Kepnnin sem haldin var í Milano 29 jan. verður sýnd klukkan fimm í dag.