Ferðaskipuleggjandinn er eigandi lítillar ævintýramennsku-ferðaskrifstofu í Holllandi. Hann hefur ferðast mikið með holllenska göngumenn og harðjaxla um Ísland og Grænland undanfarin ár og hefur síðan hinn fótinn og hjólið í fjarlægari löndum; upp á síðkastið eru það Himalayafjöllin – Indlandsmegin.
Hann sendi á mig ferðalýsingu og myndir af nýjasta uppátækinu; mótorhjólaferð í Himalaya sem hann segir
að "sé þess virði !!!! " og leist vel á að koma og kynna ferðina Íslendingum því hann langi í þá með í ferðina, þeir séu svo "skemmtilega brjálaðir".
Myndasýning úr ferðunum hans 2005 og kynning á ferðunum framundan í ár er haldin í Salnum á Farfuglaheimilinu í Reykjavík, Sundlaugavegi 34, 105 Reykjavík. www.hostel.is
Laugardaginn 11. febrúar kl. 16:00.
Uppákoman er opin öllum; örugglega mjög áhugaverð fyrir ferðafíkla, hvort sem þeir ætla á mótorhjól til Indlands í sumar eða kannski síðarmeir.
Vefsíða ferðaskrifstofunnar með kynningu á ferðinni er www.travel2explore.com
Kveðja Sirra.