Stærsti samningur vélhjólasportsins gæti verið í uppnámi ef spólglaðir einstaklingar fara ekki að taka á stóra ínum. Nokkuð er um að Jósepsdalurinn sé notaður sem æfingasvæði mótorhjóla og búnar til þar brautir. ÞETTA ER EKKI Í LAGI. Eina brautin sem má nota á svæðinu er brautin sem Hjörtur L. er að vinna að, og er taðsett á móti Litlu-kaffistofunni (hinu megin við veginn).
Þeir sem vilja hjóla í Jósepsdal er bent á að vegur liggur eftir endilöngum dalnum og skal hann notaður og ekki önnur svæði. Brekkuklifur er BANNAÐ og verði einhver gripinn við svoleiðis iðju verður það kært til lögreglu.
Hafa skal í huga að skemmdir eftir brekkuklifur þarf að laga. Vilt þú taka þátt í því?
Nei, ekki við heldur! Þó svo að við höfum fengið svæðið fyrir okkur er ekki þar
með sagt að við megum leika þar lausum hala. Það fylgja mjög stífar kvaðir á okkur
og er verið að vinna í reglum og heildarskipulagi svæðisins. Sú vinna ætti að
verða búin áður en vor og sumar vertíðin byrjar.
Umhverfisnefnd og Hjörtur L., framkvæmdastjóri VÍK