Reynt var að fá eitthvað vit í gögn úr B flokk þar sem talið var að hringur 3 og 4 væru eðlilegir. Hinsvegar eru þær upplýsingar ekki réttar þar sem hringur 1 og 2 (þegar rafmagnið fór af) hafa bein áhrif á millitímana í næstu hringjum og um leið stöðu keppanda. Við nákvæma skoðun eru því overall úrslitin þau einu sem hægt er að birta. Allt annað væri steypa. Keppendur í B flokk verða því að ganga með vasaklút næstu daga til að þurka tárin.