FIM birti um helgina upplýsingar um hvernig keppnisdagatalið verður á næsta ári. Talsverðar breytingar verða á dagatalinu og þar má fyrst nefna að keppt verður í Heimsmeistarakeppninni í Ástralíu í fyrsta sinn. Það má segja að FIM taki fyrsta skrefið í að ná í kringum hnöttinn því árið 2012 er stefnt á að bæta við keppni í Asíu.
Nokkrir punktar úr dagatali næsta árs, sem enn hefur ekki verið klárað
- Fyrsta umferðin verður í Ástralíu 15.maí
- Ein umferð verður í Brasilíu
- Tvær umferðir verða í USA (Glen Helen í September en hin er óráðin)
- Valkenswaard og Lierop eru enn að berjast um Hollensku keppnina
- Engin keppni verður í Frakklandi (MXoN verður þar)
- Chepstow og Matterley Basin eru að berjast um Bresku keppnina (þar var engin keppni í ár)
Dagatalið verður birt í Október.