Hetja síðustu helgi er ekki Hakkinen heldur Karl Gunnlaugsson. Ef einhverjum tekst að ota góðum hjólatúr í sjónvarpið þá er það hann. Hjólamenn kipptust til í sófanum þegar fréttin birtist og jafnóðum rifjuðu upp hina svæsnustu hjólatúra sem þeir hafa sjálfir lennt í. Einhvernveginn varð himininn heiðskýr og og birti vel til í þessum litla hjólaheimi og vonandi að umfjöllum fjölmiðla verði eins jákvæði og var nú um helgina. Stórt myndasafn hefur verið birt áwww.ktm.is úr þessum túr og vill vefstjóri minna menn á að gera meira af þessu. Þeir sem ekki hafa tækifæri á að birta myndir og frásögn skulu einfaldlega sníða þetta til í tölvunni og senda sem fréttaskot. Athygli skal vakin á að myndasafnið inniheldur nokkra appelsínuhúðaða „berga“ sem eru ekki við hæfi barna 🙂