Aron Ómarsson er ósigrandi um þessar mundir í íslenska motocrossinu. Hann sigraði báðar umferðirnar í Álfsnesi í dag og er því enn með fullt hús eftir tvær keppnir af fimm. Keppnin í dag var nokkuð létt fyrir hann og var forystan nánast örugg frá upphafi til enda. Gestakeppandinn James Robinson frá Malasíu varð annar og Gylfi Guðmundsson þriðji. Veðrið var frábært, brautin var frábær, keppnin frábær og stemmningin frábær.
Úrslitin eru að týnast inn og verður þetta uppfært hér smátt og smátt….
Kvennaflokkur
- Signý Stefánsdóttir
- Karen Arnardóttir
- Andrea Dögg Kjartansdóttir
MX2
- Eyþór Reynisson
- Örn Sævar Hilmarsson
- Jónas Stefánsson
Unglingaflokkur
- Björgvin Jónsson
- Kjartan Gunnarsson
- Guðmundur Kort Nikulásson
85 cc
- Guðbjartur Magnússon
- Þorsteinn Helgi Sigurðarson
- Einar Sigurðsson
85 yngri (12-13 ára)
- Hlynur Örn Hrafnkelsson
- Óliver Örn Sverrisson
- Viggó Pétursson
B-flokkur:
- Ármann Örn Sigursteinsson
- Steingrímur Örn Kristjánsson
- Garðar Atli Jóhannsson
B-flokkur 40+:
- Haukur Þorsteinsson
- Reynir Jónsson
- Gunnlaugur Rafn Björnsson
Einar Sigurðarson handleggsbrotnaði um síðustu helgi og var því ekki með í MXopen
Í 2. sæti í 85 cc flokki varð Þorsteinn Helgi Sigurðarson en ekki Þorkell Jónsson, svo farið sé með rétt mál 😉
Já, smá klúður þarna myndi ég segja
Afsakið þessa villu. Við bíðum bara aftir staðfestum úrslitum frá MSÍ (eins og allir væntanlega)
Já líka villa í Kvennaflokknum, þar var Andrea Dögg í þriðja ekki Ásdís Elva
Þá ættu úrslitin að vera orðin rétt. Nánari úrslit er að finna hér : http://www.mylaps.com/results/showevent.jsp?id=560537
Væntanlega á eftir að breyta stöðunni í Íslandsmótinu í MXopen þar sem Robo tekur ekki stig í Íslandsmótinu og allir sem urðu fyrir neðan hann ættu að færast upp um eitt sæti.