Við ætlum að opna sandbrautina hjá okkur á laugardaginn 8.apríl kl.13.00. Miðasala fer fram í skálanum í Þorlákshöfn og kostar 500kr. fyrir 85cc og minni og 1000 kr. fyrir 125cc og yfir. Þeir sem eru á minni hjólunum geta hjólað eitthvað í púkabrautinni á meðan foreldrarnir hjóla í stærri brautinni. Það gilda sömu reglur og á Bolöldusvæðinu allir að vera með hjólin skráð osfrv.
Stjórnin