Akrabraut er opin frá og með sumardeginum fyrsta.
ekki er búið að fara yfir brautina en hún er í ágætis standi.
minnum á miðana í olís.
ps. brautin er opin alla daga, allann daginn
Greinasafn fyrir flokkinn: Ástand brauta
Hér geturðu lesið nýjasta nýtt um ástand brauta
MotoMos lokar í dag vegna breytinga og viðhalds
Brautin hjá MotoMos lokar frá og með deginum í dag og þar til nánar verður auglýst. Brautin er að fara í ítarlegt viðhald og smávægilegar breytingar. Stórtækar vinnuvélar verða að vinna á svæðinu og er ÖLL UMFERÐ Í BRAUTINNI BÖNNUÐ á meðan. Þetta ástand mun vara í nokkra daga og verður rækilega auglýst þegar hún opnar aftur.
Bolaöldubrautir og slóðar
Búið er að lagfæra MX brautina með traktornum og er hún í flottu standi. Einungis er opið á neðra slóðasvæðinu, vinsamlegast virðið það. Ekki er starfsmaður á svæðinu yfir daginn ennþá, vinsamlegast farið varlega, þið eruð á eigin vegum.
Opnunartímar næstu daga:
Mán, Þirðju og Miðvikudag opið 16 – 21.
Fimmtudag (Sumardaginn 1. ) Opið frá 12 – 18
Föstudag lokað, brautin græjuð fyrir helgina.
Laugardag og Sunnudag 12 – 18.
Brauta og slóða nefndir.
Selfoss opnar í dag
Selfoss brautin opnar i dag kl 14
Miðar seldir í Pulsuvagninum. 1000 kr fyrir félagsmenn, 1500 fyrir aðra.
Motomos nýpússuð
Búið að laga öll uppstökkin í Motomos , vildum ekki skemma ruttsana í beygjunum svo við létum þá eiga sig…
Þorlákshöfn nýsléttuð
Brautin í Þorlákshöfn var sléttuð í gær. Hiti 6°c og rök jörð. Endurobraut fín og nýlega grjóthreinsuð af gullmolanum honum Hauki # 10. Munum eftir miðum 🙂