Juha Salminen KTM kláraði síðustu GNCC keppnina á tímabilinu í fyrsta sæti, eftir að hafa tryggt sér titilinn fyrir hálfum mánuði. Salminen náði strax mínútu forskoti og hélt því alla keppnina. Annar varð Barry Hawk á Yamaha og þiðji Carles Mullins líka á Yamaha. Tímabilið endaði þannig að Salminen KTM náði 344 stigum, Barry Hawk Yamaha 270 og Glenn Kearney Suzuki 197.
Lesa áfram GNCC lokið
Greinasafn fyrir flokkinn: Endúró
Ef það er enduro…þá er það hér
Juha Salminen GNCC meistari
Finninn Juha Salminen KTM sem er tífaldur heimsmeistari í Enduro hefur nú bætt GNCC titli í safnið. Juha fór sem kunnugt er í víking til USA til að takast á við nýja hluti. Hann hefur sagt að hann hafi verið orðinn leiður á því að fara alltaf sama hringinn mótaröðinni í Evrópu og því ákveðið að prófa að keppa í USA til að skipta um umhverfi. Hann vissi ekkert hvað hann var að fara út í, og keppti á 2 stroke hjóli af þeirri einföldu ástæðu að hin liðin gerðu það. " Það sem er skemmtilegast er að allir staðir eru nýjir fyrir mér hér og ég hef litla hugmynd um hvað ég er að fara út í á hverjum stað" sagði Salminen. Juha hefur unnið hug og hjörtu Bandaríkjamanna og óhætt að segja að þessi rólegi Finni hafi tekið þá í kennslustund á útivelli. Enn er eftir ein umferð í GNCC, en úrslitin í keppninni um helgina eru hér:
Lesa áfram Juha Salminen GNCC meistari
Lagasafn um torfæruhjól – umferðarlög og reglugerð um aksturskeppnir
Vil vekja athygli á því að nú er komið inn hér vinstrameginn undir “ Félagið „, lagasafn um torfæruhjól – umferðarlög og reglugerð um aksturskeppnir. Gott fyrir menn að hafa þetta hér aðgengilegt ef einhverjar spurningar vakna.
KTM þrefaldir heimsmeistarar í WEC
Þetta var svakaleg helgi fyrir KTM í World Enduro Championship ( WEC), en áttunda umferðin var þá haldin í Grikklandi. KTM liðið innsiglaði heimsmeistaratitla í öllum flokkum í keppninni. Í E1 var það spánverjinn Ivan Cerventes á KTM 250 EXC-F, í E2 var það Finninn Samuli Aro á KTM 450 EXC og í E3 er það Íslandsvinurinn og Bretinn frá Isle of Man á KTM 525 EXC. Svo lönduðu þeir einnig titlunum í flokki framleiðanda í E1 og E3, en allt er enn opið í E2. Nánari staða í áttundu umferðinni er hér:
Lesa áfram KTM þrefaldir heimsmeistarar í WEC
Salminen sigrar GNCC 11. umferð
11. umferð GNCC fór fram um helgina og skemmst frá því að segja að Juha Salminen KTM sigraði. Salminen datt í fyrstu begju og setti lítið gat á pústið hjá sér, sem reyndar varð stærra þegar á leið keppnina og einnig skemmdi hann bensínbarkann, en sem betur fer tók hann ekki eftir því fyrr en eftir keppnina. Eftir krassið var hann með þeim síðustu en var kominn í topp þrjá eftir fyrsta hring. Eina alvöru keppnin sem hann fékk var frá Barry Hawk á Yamaha og Nathan Kanney Yamaha. Þeir þrír skiptust á að hafa forystu í keppninni. Ekki leið á löngu þar til að þessir þrír fóru að hringa hægari ökumenn og þá hægustu hringuðu félagarnir þrisvar, þótt að keppnin hafi verið átta hringir. Salminen sigraði með mínútu mun, Kanney varð annar og Hawk þriðji. Salminen hefur nú 55 stiga forystu í keppninni.
Lesa áfram Salminen sigrar GNCC 11. umferð
ISDE lokið með sigri Ítala
Eftir erfiða viku með óteljandi erfiðum brekkum, börðum, ám , slóðum og fl. lauk ISDE 2005 um helgina með sigri Ítala, aðrir urðu Finnar og þriðju Svíar. Í Ítalska liðinu voru Alessandro Botturi (KTM), Alessandro Belometti (KTM), Simone Albergoni (Honda), Alessadro Sanni (Hon), Alessio Paoli (TM) og Guillano Falgari. Ítalir kláruðu urðu rúmlega mínútu á undan Finnum, sem er í raun ótrúlega lítill munur á 6 dögum. Í einstaklingskeppninni sigraði Íslandsvinurinn David Knight KTM og annar varð Stafan Merriman á Yamaha. Nánari úrslit hér: