Aríð 2000 urðu miklar breytingar á Husqvarna línunni. Ég hef persónulega séð fjórgengishjólin í akstri og keppnum og fullyrði að hér eru á ferðini hjól sem skara frámúr, sérstaklega í Enduro. Heimsmeistaratitilar í endúró segja allt sem þarf að segja. Fjárhagsvandræði hafa því miður verið bölvun á fyrirtækinu og ekki sér enn fyrir endan á þeim. Paul Edmundson sem var aðalstjarna Husqvarna í fyrra hyggst því miður segja skilið við Husky og bendir allt til þess að kallinn keyri um á bláu hjóli næsta ár. Hefur hann gefið það út að flutningurinn hjá Husqvarna tengist í engu hjólunum sjálfum, heldur fjárhagsvanda Husky. Herma sögur að líklega verði keppnisliðið minnkað um helming fyrir 2003. Það gerðist svo ekki alls fyrir löngu að miklar rigningar urðu til þess að ítölsku verksmiðjurnar urðu fyrir barðinu á flóðum og tefur það framleiðsluna fyrir 2003 enn frekar. Já það á ekki af ítölunum að ganga. Þess má svo til gamans geta að á næsta ári fagnar Husqvarna 100 ára afmæli sínu. Verður ýmislegt fróðlegt gert í tilefni þess og geta áhugasamir skoðað það á heimasíðum Husky. Að lokum eru hér upplýsingar um nýjustu dísilhjólin (stolið frá ADB).
4
Greinasafn fyrir flokkinn: Endúró
Ef það er enduro…þá er það hér
Hrein ánægja
Það er alltaf gaman að rekast á nýja íslenska mótorhjólasíðu. Ánægjan margfaldast hinsvegar þegar síðan er eins skemmtileg og vel framsett og síðan hjá Guðmundi Péturssyni. Vefsíðan hjá honum snýst að vísu um miklu meira en mótorhjól en til að komast beint þangað skal veljawww.simnet.is/gudmundurp/hjol.html en vilji menn skoða síðuna frá upphafi þá er linkurinnwww.simnet.is/gudmundurp
Framtíð akstursíþrótta
Á vef ÍSÍ þann 15 nóvember síðastliðinni birtist neðangreind grein á forsíðunni.
„Tillaga að framtíðarfyrirkomulagi akstursíþrótta
Á framkvæmdastjórnarfundi ÍSÍ í gær var rætt um ósk nokkurra akstursíþróttafélaga, sem eru nú þegar innan íþróttahreyfingarinnar, um að akstursíþróttir og skipulag akstursíþróttakeppna verði alfarið og eingöngu innan vébanda ÍSÍ og samkvæmt lögum og reglum íþróttahreyfingarinnar. Í hugmyndum félaganna kemur jafnframt fram að eðlilegt sé að ÍSÍ stofni sérstakt sérsamband – Akstursíþróttasamband Íslands og að lýðræðislega kjörin stjórn hins nýja sérsambands muni í samráði við fulltrúa Dómsmálaráðuneytisins gera tillögur að nýrri reglugerð um akstursíþróttir. Dómsmálaráðherra skipaði nefnd fyrir all nokkru síðan til að fjalla um endurskoðun á reglugerð um akstursíþróttir og aksturskeppni. Nefndin hefur ekki komið saman í nokkuð langan tíma og telja félögin að hún muni ekki skila áliti sem getur talist ásættanlegt. Á fundi framkvæmdastjórnar í gær var ákveðið að fylgjast með þróun mála og knýja á um niðurstöður í ráðherranefndinni. Í framhaldinu mun stjórn ÍSÍ taka málið upp aftur.“
Team KTM 2003
Þar sem komnar eru hugmyndir í fréttum á Motocross.is um Team KTM fyrir næsta ár er rétta að bæta við. Hugmyndir hafa verið uppi í herbúðum KTM að vera aðeins með 2 ökumenn fyrir 2003 þá Einar og Helga Val. Eftir að Mikki, Ismael og Árni bættust í hópinn að ógleymdum Hanna að þá lítur út fyrir að það verði haldið áfram með lið. Hugmyndin er að vera með eitt stórt Team KTM sem verður undir sama hatti (KTM tjaldinu) þó er líklegt að því verði skipt þannig að Einar KTM 450 EXC / SX, Helgi Valur KTM 525 EXC / SX og Hanni KTM 450 SX verði í Team KTM / Coca-Cola / Shell / KitKat og Mikki KTM 250 SX, Ismael KTM 250 SX og Árni KTM 450 SX verði í Team KTM / ? / Shell / FOX. Líklegt er á þessari stundu að þó verði aðeins eitt lið „Team KTM“ sem telji stig og verði valdir bestu 4 ökumennirnir úr báðum liðunum til þess. Víst er að nokkrir liðsmenn ætla í æfingabúðir til Svíþjóðar og stefnt er á allavega 2 stórar erlendar keppnir í byrjun árs og lok árs. Team KTM / Karl Gunnlaugsson
Ótrúleg verð
Verð á notuðum hjólum er í algjöru lágmarki. Hjólin eru „ekki“ að seljast og er markaðurinn í mikilli lægð. Þeir fáu sem eru að kaupa hjól eru að „spara“ á annað hundrað þúsund.
Er komið nýtt KTM lið?
Samkvæmt óstaðfestum heimildum þá stefnir allt í að verslunin Moto verði ekki með keppnislið á næsta keppnistímabili. Mikael David (Mikki) hefur hinsvegar verið í viðræðum við Karl Gunnlaugsson (Kalla) um að stofna eigið lið og fá einhvern stuðning frá Kalla ef þeir láta liðið heita „Team KTM“. Í liðinu eru Árni Stefánsson og Ishmael David. Mikki og Árni fá ný KTM hjól í næstu viku. Sömu „óstaðfestu“ heimildir herma að Valdimar Þórðarsson (Pastrana) var í liðinu en Þór Þorsteinsson (Sleipi Þunder) hafi stolið honum með því að redda honum vinnu í USA og einhverju „ígildi“ samnings við Suzuki. Einhver flækja er því orðin með fjórða mann og hefur Mikki verið að hræra í nokkrum af bestu ökumönnunum á Íslandi.