Þá er það loksins orðið staðfest nokkrum dögum á eftir áætlun að 1. umferðin í enduro fer fram á draumasvæði margra – við Hellu. Náðst hefur samkomulag við Flugbjörgunarsveitina á Hellu og landeigandann um að halda keppnina 12. júlí nk. á þessu stórskemmtilega svæði.
Margir þekkja svæðið frá fyrri tíð en það bíður upp á frábæra möguleika á þrautum og glímu við brekkur, sand, kletta, vatn og margt fleira. VÍK leigir keppnissvæðið til afnota þennan eina dag og rennur gjaldið alfarið til Flugbjörgunarsveitarinnar sem á móti mun aðstoða okkur með gæslu á svæðinu.
Utan við þennan eina dag er svæðið þó lokað allri umferð mótorhjóla – brot þýðir að leyfið verði afturkallað. Vinsamlegast virðið það!
Nú er bara að safna liði, búa til stemningu og taka þátt og gera þetta að næst flottustu keppni ársins (þe. á eftir Klaustri 🙂