Já, þið lásuð rétt eftir 11 ára setu sem formaður hefur undirritaður sagt skilið við formannsstarfið og nýr maður tekur nú við. Aðalfundur VÍK fór fram í kvöld og var þokkalega sóttur. Hefðbundin aðalfundarstörf voru framkvæmd og fylgir bæði skýrsla stjórnar fyrir árið 2015 og kynningarglærur kvöldsins sem innihalda reikninga ársins hér á eftir.
Á fundinum var kosið í nýja stjórn en þeir Ólafur Þór Gíslason og Birgir Már Georgsson sögðu sig úr stjórn að þessu sinni. Fyrir næsta ár skipa stjórn VÍK þeir Pétur Smárason, Örn Sævar Hilmarsson, Pálmar Pétursson og Guðbjartur Stefánsson en varamenn eru Arnar Þór Ragnarsson og Óli Haukur. Lesa áfram Aðalfundur yfirstaðinn – nýr formaður tekur við!