Greinasafn fyrir flokkinn: Félagsstarf

Ef starf er tengt félagi þá er það félagsstarf

Bolaöldusvæðið er LOKAÐ

Því miður er enn eitthvað í að svæðið verði nothæft. Við viljum biðja hólara um að virða það að svæðið er LOKAÐ þangað til annað verður tilkynnt.

Því miður er ekki hægt að fara með tæki inn á svæðið ennþá þar sem mikil bleyta er í brautinni.

Stór skafl hjá pallinum við húsið.
Stór skafl hjá pallinum við húsið.
Skaflar hér og þar.
Skaflar hér og þar.

 

Er viðhaldið ekki örugglega í lagi hjá ykkur?

Er keðjan og tannhjólin nokkuð orðin léleg eða bara hand-ónýt?

Er ekki málið að tékka á því? Þú villt ekki lenda í því að keðjan klikki.

HÉR er gott videó um hvernig á að endurnýja keðju og tannhjól.

Ef keðjan og tannhjólið er farið að líta svona út, þá er löngu orðið tímabært að endurnýja.
Ef keðjan og tannhjólið er farið að líta svona út, þá er löngu orðið tímabært að endurnýja.

 

 

Lesa áfram Er viðhaldið ekki örugglega í lagi hjá ykkur?

Er viðhaldið ekki örugglega í lagi hjá ykkur?

Eru þið nokkuð að gleyma að yfirfara linkinn eða keðjusleðana?

Er afturfjöðrunin nokkuð búin að valda ykkur vandræðum? Búin að skrúfa stillingar fram og til baka og ekkert gerist?

Er ástandið á linknum hjá ykkur nokkuð svona? Þetta er lýsandi dæmu um vöntun á viðhaldi.
Er ástandið á linknum hjá ykkur nokkuð svona? Þetta er lýsandi dæmu um vöntun á viðhaldi.
Er keðjan nokkuð komin í gegnum keðjusleðann? Þennan keðjusleða hefði átt að endurnýja fyrir löngu.
Er keðjan nokkuð komin í gegnum keðjusleðann? Þennan keðjusleða hefði átt að endurnýja fyrir löngu.

Er ekki málið að skella sér í smá eftirlit á tuggunni svo að þetta gerist ekki?

Stjórn VÍK

 

Vor í LOFTI?

Hjólafólk vinsamlegast athugið.

Þar sem hlýindi undanfarinna daga hafa kveikt mikla hjólalöngun viljum við árétta!!!. Það verður að leyfa jarðveginum að jafna sig betur áður en farið er að sprautast út um allt á tuggunum. Hjólafar í viðkvæman jarðveg núna getur þýtt stórkostlega skemmd í vor. Vinsamlega nýtið ykkur brautirnar í Þorlákshöfn eða MotoMos, það er leyfilegt og kostar bara 1000 kr að leika sér þar í heilan dag.

Hjólakveðja.

Stjórn VÍK.

Góðan og blessaðan daginn. Vor-ilmur í lofti?

Er tuggan búin að standa ó-eða-lítið hreifð í allan vetur?filling-a-2-stroke-with-oil

Hvað þarf að fara yfir fyrir komandi átök?

Skipta um mótorolíu og síu þar sem það á við. Þarf þó að ný olía hafi verið sett á í fyrra. Olían dregur í sig raka!!

Yfirfara keðju og tannhjól.Gott viðmið á keðju er að ekki sé hægt að ýta henni til hliða meira en ca 1/2 – 1 keðjubreidd. ATH ef skipta þarf um keðju þarf líka að skipta um tannhjólin.

Yfirfara legur í link og fjöðrun. Skipta um þær ef rið og drulla hefur hreiðrað um sig.

Yfirfara alla barka, hreinsa og smyrja. Skipta um barkana ef þeir eru birjaðir að trosna.

Ef hjólið hefur ekkert verið notað síðan í fyrra þarf að setja nýtt bensín á tankinn. ATH innspýtingarhjólin eru sérstaklega viðkvæm fyrir gömlu bensíni. Tæma tankinn algjörlega, má nota það bensín á heimilisbílinn td.

Yfirfara dempara. Nauðsynlegt er að skipta um olíu á framdempurum amk einu sinni á ári. Á afturdempara er í lagi að skipta um olíu og gas annaðhvort ár. ATH þetta gildir ekki fyrir keppnishjól. Þar er þörf á olíuskiptum mun oftar.

Fyrir þá sem hafa litla kunnáttu í viðgerðum. Um að gera að skjóta spurningum á vanari hjólakappa í þessu sporti er vanalega ekkert mál að fá ráðleggingar hjá reynsluboltunum. Svo eru líka nokkur frábær verkstæði sem sérhæfa sig í hjólaviðhaldi.

Góða skemmtun.

Stjórn VÍK

 

Æfingar falla niður í Reiðhöllinni

Þær fréttir voru að berast að tímar í Reiðhöllinni falla niður á næstunni vegna óviðráðanlegra orsaka. Æfing fellur því niður a morgun, en við byrjum aftur eins fljótt og hægt er. Snjó er farið að leysa í Bolaöldu og ábyggilega stutt í að við getum farið að nota 85 brautina þar.

Kveðja,  Helgi og Össi