Þar sem vökvunarkerfið hjá okkur er bilað þá er stóra MX brautin lokuð og verður það alla helgina. Vonumst til að geta opnað hana fljótlega eftir helgi. Nú er veðrið semsagt of gott ;(
Barna-brautin og slóðarnir eru hinsvegar opnir og í fínu standi. Munið eftir miðum eða árskortum.
Sagt hefur það verið um suma að tími sé afstæður. Formaðurinn okkar er einn af þeim og hjá honum er tími ekki vandamál, bara spurning um að framkvæma.
Í tilefni af þjóðhátíðardeginum þá tók áðurnefndur formaður sig til og djöflaðist á traktornum um slóðkerfið í leit af áskorunum og lagfæringum. Og þar sem tími hjá honum er afstæður þá lagfærði hann MX brautina í leiðinni.
Loksins fengum við vætu í brautina til að hægt sé að opna.
Opnum kl 18:00 í dag. Opið til 22:00.
ATH: þar sem brautin er ný-búin að fara í gegnum viðamiklar breytingar þá er ansi líklegt að það komi upp eitthvað af hnullungum. Mikið væri nú gott ef ökumenn stoppuðu við steinana, sem þeir annars myndu keyra á og detta, taka upp og henda út fyrir braut. Það gerir brautina svo miklu skemmtlegri.
OG SVO ÞAÐ SEM ÞARF AÐ SJÁLFSÖGÐU EKKI AÐ ÍTREKA::::: MIÐI ER EKKI MÖGULEIKI HELDURSKYLDA. Árskortin eru að sjálfsögðu lang best.
Slóðar á neðra svæði og í Jósefsdal eru líka opnir. ATH þar er einnig miðaskilda.
BRUGGARADALUR OG EFRA SVÆÐIÐ ER LOKAÐ VEGNA AURBLEYTU.
Loksins er komið að því að MX brautin í Bolaöldu opnar eftir meiriháttar endurbætur. Pétur Smára og Össi eru búnir að leggja nótt við dag til að gera brautina spennandi fyrir alla. Höfðu meira að segja varla tíma fyrir Klausturskeppnina!!!
ATH að brautin verður bara opin í DAG til að sjá hvernig breytingarnar virka.
OPIÐ: 18:00 – 22:00 í dag. Almenn opnun verður auglýst síðar.
Miðar eru seldir í Olís við rauðavatn eða í Litlu Kaffistofunni. Miðalausum verður umsvifalaust vísað af svæðinu og settir í bann.
Pétur Smára verður með lista yfir árskortshafa ( FYRIR ÞÁ SEM EKKI HAFA FENGIÐ ÁRSKORTIÐ TIL SÍN. )
Okkur vantar ennþá viljuga til að hjálpa okkur í brautargæslu. Á morgun, Laugardaginn 16. Maí vantar okkur enn amk þrjá til að vinna með okkur.
Okkur vantar brautarverði í Enduro CC laugardaginn 16. Maí. Þarna er mjög gott að koma inn í sportið og fá að eiga góðan tíma með skemmtilegu fólki og enn fremur að fá að aka um þetta svæði.
Okkur vantar brautarverði í Klausturskeppnina laugardaginn 30. Maí. Þurfum varla að ræða þetta 🙂 svæðið er geggjað, skemmtunin frábær. Við sköffum bensín á hjólin, mat í tunnuna og hamborgara í eftirrétt.
Áhugasamir vinsamlegast sendið póst á vik@motocross.is Gott væri ef hægt er að taka fram nafn, aldur og símanúmer. Einnig má hringja í Óla S: 6903500