Greinasafn fyrir flokkinn: Félagsstarf

Ef starf er tengt félagi þá er það félagsstarf

HEYRST HEFUR AÐ:

AÐ: Okkar nýju brautarstjórar séu ofvirkir fyrir allan peninginn.

AÐ: Það hafi gleymst að segja þeim að þeir fái engan pening fyrir þetta.

AÐ: Þeir séu komnir með stórvirkar vinnuvélar í Bolaöldubraut.

AÐ: Breytingar á breytingum verði breytinganna virði.

AÐ: Breytingarnar taki einhvern tíma.

AÐ: Margir eigi eftir að lýsa skoðunum og þar af leiðandi að koma til að aðstoða!!!!!!!!!!!!

AÐ: Fyrrverandi brautarstjóri sé feginn að það séu að koma nýjar hugmyndir.

AÐ: Fyrrverandi brautarstjóri gæti jafnvel hugsað sér að setja tugguna í gang og prufa eftir breytingar. ( Eitthvað sem ekki hefur verið gert lengi )

IMG_1481IMG_1482

Klaustur 2015

Það er ekki hlaupið að því að græja svo stóra keppni sem Klausturskeppnin er. Margar sjálfboðahendur þurfa að koma þar að svo dæmið gangi upp. Á Klaustri er hópur vaskra sjálfboðalið sem fer hreint hamförum um svæðið þessa dagana í að breyta og bæta brautina undir stjórn Kjartans Kjartanssonar. Í fyrra var byrjað á því að snapa saman brotnum og gömlum vegstikum sem Vegagerðin hefur ánafnað okkur. Þar sem almenn bjarsýni er innan hópsins, sem kemur að keppninni, töldum við í upphafi að „slatti“ af stikum væri næginlegt til að merkja upp brautina. En bjartsýni dugar víst ekki ein og sér til að merkja alla þessa kílómetra. Sem betur fer eigum við góða að og vonumst við til að það efni sem næst að snapa saman á þessu ári fari langt með merkingar á brautinni. Amk þá er stefnt á að allir nýjir kaflar verði merktir með plasstikunum. Nýjasti skammturinn sem við fengum er nú hjá yfirsmiðnum okkar honum Pálmari P sem mun rista þær í tvennt til að auka magnið.

Dágóður skammtur sem dugar þó bara í smá part af brautinni. Það þarf nokkur þúsund stykki til að allt gangi upp.
Dágóður skammtur sem dugar þó bara í smá part af brautinni. Það þarf nokkur þúsund stykki til að allt gangi upp.
Á þessari mynd sést hversu vel brautarmerkingarnar sjást með þessum stikum. Kjartan og félagar eru að vinna kraftaverk.
Á þessari mynd sést hversu vel brautarmerkingarnar sjást með þessum stikum. Kjartan og félagar eru að vinna kraftaverk.

 

Kæru félagar og hjólavinir ATHUGIÐ VEL!!!!!!!!!!!!!!!

Nú er komið að þeim árstíma að jarðvegurinn er MJÖG viðkvæmur og þar af leiðandi verðum við að virða aðstæður og EKKI hjóla þar sem er bleyta eða möguleiki á jarðvegsskemmdum eftir okkur.

Við sem stöndum að sportinu erum að kynna okkar sport sem náttúru – unnandi – fyrirmyndar – sport.  Aðstoðið okkur í að viðhalda því orðspori.

Þannig að nú hlífum við jarðveginum þangað til frostið og rakinn kemst í viðráðanlegt ferli.

Svona för viljum við ekki skilja eftir okkur í nátturunni.
Svona för viljum við ekki skilja eftir okkur í nátturunni. Hugsum áður en við keyrum.

Sandurinn er eina svæðið sem er tilbúið til hjólamennsku þessa dagana.

TAKK FYRIR.

ERTU EKKI ÖRUGGLEGA BÚINN AÐ GANGA FRÁ FÉLAGSGJÖLDUNUM?

Minnum á að klára félagsgjöldin fyrir skráningu í Klausturskeppnina. Við bjóðum uppá frábæra kosti í félagsgjöldum og árskortum: Gott að ganga frá þessu núna 🙂

ÁRSKORT OG FÉLAGSGJALD 15000.  FÉLAGAKERFIÐ HÉR

Félagsgjald 2015             5000 kr.

Fjölskyldugjald                 9000 kr. (allir á sama heimilisfangi)

VÉLHJÓLAÍÞRÓTTAKLÚBBURINN VÍK 2015

Vissir þú að VÍK rekur mjög öflugt barnastarf? Vissir þú að án framtíðar verður lítið úr sportinu okkar. Þess vegna leggjum við hjá VÍK mikið upp úr framtíðar íþróttafólkinu okkar. Við erum með kennara sem eru með þjálfara réttindi frá ÍSÍ. Þannig fá framtíðar íþrótta fólkið okkar rétta kennslu alveg frá byrjun.

Ert þú ekki örugglega í hópnum okkar? Rukkun fyrir félagsgjöldunum er að detta inn í heimabankann hjá öllum sem áður hafa verð skráðir í klúbbinn. Félagsgjöldin gera okkur kleift að halda úti öflugu starfi fyrir FÉLGASMENN og einnig að gera okkar barnastarf sem best úr garði.

Einnig er hægt að skrá og greiða í gegnum þennan tengil HÉR

Flottir krakkar á útiæfingu í Bolaöldu
Flottir krakkar á útiæfingu í Bolaöldu
Flottir krakkar á inniæfingu í Reiðhöllinni Víðidal
Flottir krakkar á inniæfingu í Reiðhöllinni Víðidal

Það er frábært að sjá þessi yngstu og gaman að  sjá áhugann hjá forledrunum.
Það er frábært að sjá þessi yngstu og gaman að sjá áhugann hjá forledrunum.

VÉLHJÓLAÍÞRÓTTAKLÚBBURINN VÍK 2015.

Ertu ekki örugglega búinn að ganga frá félgagsjöldunum? Við minnum á okkar frábæru árskort sem eru, að okkar áliti, í raun gjöf en ekki gjald. ÁRSKORT OG FÉLAGSGJALD 15000.  FÉLAGAKERFIÐ HÉR

Félagsgjald 2015             5000 kr.
Fjölskyldugjald                 9000 kr. (allir á sama heimilisfangi)

Framundan hjá VÍK eru fjölmörg verkefni:

Enduro/CC 16. maí

Klausturs keppni 30. maí.

MX Keppni 23. ágúst

Ásamt nokkrum bikar og skemmtikeppnum.

Brautirnar í Bolaöldu verða teknar í stóra yfirhalningu núna í vor, nýjir og ferskir menn eru komnir í brautarstjórn og satt að segja þá væri frábært ef bara 10% af þeirra hugmyndum ná að komast í verk. Stefnt er að því að stóra brautin verði ekki opnuð fyrr en búið verður að breyta og bæta. Ætlar þú ekki að vera með í okkar hóp í sumar?

Enduro Hella
Enduro Hella
Klaustur
Klaustur

Bolaalda
Bolaalda