Okkur vantar HJÁLP við að laga herfið sem við notum til að rippa og lagfæra brautirnar. Við erum að leita eftir einhverjum sem gæti smíðað það upp, gert sterkara sem og notendavænna. Við erum tilbúin í að greiða hæfilegt gjald og efniskostnað. Er einhver harðduglegur og laghentur með aðstöðu og færni í þetta verkefni með okkur? Hafið samband við Kela eða Óla í S: 6697131 – 6903500 eða senda póst á vik@motocross.is
Greinasafn fyrir flokkinn: Félagsstarf
Ef starf er tengt félagi þá er það félagsstarf
Enduroskúbb 1.0 – GFH enduro 2014
Við lofuðum frekari fréttum í kvöld af enduroinu og hér kemur hluti 1.0. MSÍ hefur ákveðið að breyta keppnisfyrirkomulaginu á endurokeppnum fyrir sumarið. Helstu breytingar eru:
GFH Meistaraflokkur: 75 mínútna keppnistími, 2 umferðir yfir daginn eins og áður
GFH Tvímenningur: 74 mínútna keppnistími og tvær umferðir, hámark 2 hringir á mann í einu en allir geta tekið þátt þe. keppendur í Motocrossi geta sameinast í þennan flokk og tekið létta motocrossæfingu í enduroinu. Áherslan í flokknum er þó eftir sem áður á stemningu og Klaustursfíling þannig að allir alvöru keppnismenn skrá sig að sjálfsögðu í GFH Meistaraflokk.
GFH Enduroflokkur; 45 mínútna keppnistími sem fyrr og tvær umferðir yfir daginn. Aldursskiptir flokkar bæði karla og kvenna, 14-18, 19-39, 40-49, 50+ mv. aldur á líðandi ári. Lágmarksfjöldi í flokk eru 5 keppendur, annars er flokkurinn keyrður með næsta flokk fyrir neðan.
Styttri en erfiðari keppnisbrautir: Styttri hringir, lagt verður upp með að hringurinn verði að hámarki 10-12 mínútur og að áhorfendur geti fylgst með keppninni úr návígi. Keppnin á að vera öllum fær EN í hverri braut eiga að vera 1-2 erfiðar hindranir með skýrum (og lengri) hjáleiðum fyrir þá sem ekki treysta sér erfiðari leiðina.
Seinni hlutinn 2.0 þe. varðandi næsta keppnisstað þe. 12. júlí átti að vera klár í kvöld en því miður hefur ekki náðst að klára formsatriðin ennþá en það gerist væntanlega á þriðjudagskvöldið næsta. Fylgist því vel með, ef allt gengur að óskum verður fyrsta keppnin mögnuð og frábært start á nýju endurotímabili á Íslandi, hvorki meira né minna!
Nánar um nýjar enduroreglur: Lesa áfram Enduroskúbb 1.0 – GFH enduro 2014
Slysin gera ekki boð á undan sér.
Við erum í sporti þar sem slysin gera ekki boð á undan sér og þar af leiðandi þurfum við að muna eftirfarandi!!!!
Ef óhapp gerist í braut og fleiri eru að hjóla!!! Byrjið á því að tryggja að aðrir iðkendur viti af því að ökumaður liggi í brautinni. Við viljum alls ekki að frekari slys verði.
- Sjáið til þess að aðrir iðkendur viti af óhappi áður en þið sinnið þeim sem fyrir óhappi varð. Það hjálpar þeim slasaða ekkert að aðrir ökumenn lendi í því að keyra á hann.
- Eftir að það er búið að tryggja að aðrir iðkendur viti um óhappið, sinnið þá þeim sem fyrir óhappinu varð. Reynið að sinna þeim slasaða án þess að hreyfa við honum. Athugið hvort um andnauð er um að ræða, ef ekki þá bíðið með allar aðgerðir þangað til viðkomandi nær rænu til að svara eða hringið strax í 112 sem liðsinna hvað á að gera í þeim aðstæðum sem við á.
- Eru ekki anars allir búnir að fara á fyrstuhjálparnámskeið?
Heyrst hefur …
Hvað fékkst þú fyrir peninginn þinn?
Hvað fékkst þú fyrir peninginn sem þú borgaðir í Keppsigjöld á Klaustri.
- Eitt skemmtilegasta svæði landsins fyrir svona keppni.
- Styrktir ýmis góð málefni, björgunarsveit, leikskóla, sjúkrabíla, VÍK, ofl ofl.
- En síðast en ekki síst þá fáum við frábært framlag frá landeigendum að Ásgarði. Þeir eru þegar byrjaðir að undirbúa Klaustur 2015 með því að lagfæra alla slóðana eftir okkur. Þetta er með því besta sem þú færð fyrir peninginn þinn.
Það þarf sterk bein til að vera keppnisstjóri.
Það eru ekki margir sem geta borið það að vera keppnisstjórar í tæplega 300 manna keppni.
Innan okkar raða eru þó menn sem eru til í að taka að sér stórar ákvarðanir og gera svo til allt fyrir sportið. Karl Gunlaugsson var keppnisstjóri í Klausturskeppninni 2014 og gerði það með glæsileika eins og oft áður. TAKK FYRIR OKKUR.