Greinasafn fyrir flokkinn: Heyrst hefur að ….
Slúður. Engin ábyrgð.
enn brotni menn í Ameríku
Nú er það Ryan Dungey sem er fótbrotinn
icemoto.is hafi opnað…aftur
að það séu aðeins 1089 km á Klaustur
…“hinn“ hringinn
Aron#66 býður nú uppá demparatjún
Tekið af aron66.is
Eins og einhverjir vita sem hafa verið að fylgjast með mér hérna úti, að þá er ég að vinna í Hollandi í fyrirtæki sem heitirUltimate Suspension Þetta er fyrirtæki sem sérhæfir sig eingöngu í fjöðrunar stillingum fyrir motocross og enduro ökumenn. Ultimate Suspension sér um demparana hjá gífurlega mikið af ökumönnum í evrópu, mörgum stórum keppnisliðum og ökumönnum á borð við Antti Pyrhonen, Herjan Brakke, Robert Justs, einnig hefur hann verið að servica á keppnum fyrir mörg stór lið á borð við Ricci Yamaha og fleiri. Ég hef verið að heyra sögur að heiman að menn séu að borga einhvern 90.þúsund kall bara fyrir aðra gorma, og þá er eftir vinnan og ekki einu sinni aðrar ventlastillingar. Han hjá Ultimate hefur unnið við dempara allt sitt líf, alveg frá því að hann hætti í skóla 16 ára og veit alveg uppá hár hvað hann er að gera þegar kemur að dempurum. Ég fékk hann til að gera smá pakka díl fyrir íslenska ökumenn og hann ætlar að bjóða okkur á að taka demparana í gegn fyrir um 350 evrur, sem er rétt tæpur 60.000 einsog gengið er í dag! Í þessum pakka er bara uppsetning frá A til Ö, eins mikið og hægt er að gera. Réttir gormar fyrir hvern og einn að bæði framan og aftan, ásamt því að hann setur demparann upp fyrir íslenskar brautir, og stíl hvers og eins. Einsog þið sjáið á myndinni fyrir neðan, að þá er það ekki bara réttir gormar í dempurunum sem eru aðal atriðið. Það eru yfir milljón stillingar sem hægt er að gera með litlum skinnum og græjum sem ég hef ekki einu sinni hugmynd um ennþá hvað er. Ég get líka hjálpað til við flutningskostnað með að koma dempurunum frítt heim, ég kem væntanlega heim í byrjun maí, og get þá kippt dempurunum með mér frítt. Þið þurfið þá bara að sjá um flutningin út sjálfir/sjálf. Tíminn er naumur, klaustur fer að bresta á, þeir sem vilja vera rétt upp settir fyrir sumarið, auka öryggið á hjólinu og minnka slysahættuna með vanstilltum dempurum, geta haft samband við mig á aron@aron66.is !
Nýtt verkstæði hefur opnað í Hveragerði
Nýtt verkstæði: NOZ smávélar hefur opnað í Hveragerði.
Þeir bjóða uppá mjög samkeppnishæft verð í viðgerðum á hjólinu þínu og gera líka við sláttuvélar, vélsleða og fjórhjól.
- Opnunartilboðin í apríl eru eftirfarandi:
- Stimpilskipti 4gengis 25.000- +efni
- Stimpilskipti 2gengis 20.000- +efni
- skipta um Pakkdós og olíu í frammdempurum 8.000- +efni
- Stilla og hreinsa blöndunga 6.000-
- Tímagjald: 3.900
Sækjum og skilum fyrir smá aukagjald.
Tímapantanir í síma 868-7308
opið alla daga 8-22