VÍH hefur fengið úthlutuðu leyfi frá Hafnarfjarðarbæ til að halda ís-cross keppni á Hvaleyrarvatni í byrjun febrúar. Við erum að sjálfsögðu háðir frosti og veðri en leyfi hefur fengist fyrir 2, 3, 9 og 10 febrúar. Keppnin mun fara fram laugardaginn 2 febrúar ef frost og veður leyfir en annars frestast fram á sunnudaginn 3 febrúar eða frestast um eina viku.
Á þessari stundu liggja ekki endanlegar reglur fyrir en verið er að vinna í þeim. Gera má ráð fyrir að keppt verði í tveimur flokkum. Verksmiðjuframleidd nagladekk með að hámarki 350 nöglum í dekki og síðan opnum flokki með að hámarki 600 nöglum í dekki. Ekkert hefur hinsvegar fengist staðfest á þessari stundu hvað reglur og fyrirkomulag varðar.
Nánari upplýsingar birtast síðar.
Greinasafn fyrir flokkinn: Íscross
Akstur á frosnum vötnum
Ísinn prufaður
Um 20 hjól voru á Leirtjörn í dag og greinilegt að menn eru að komast í mikinn ís-ham. Menn voru fljótir að rifja upp gömlu ís-taktana og var mikið reis í gangi. Hvaleyrarvatn er að verða frosið og hugsanlega hægt að hjóla á því á morgunn eða á gamlársdag. Veðurspáin er hinsvegar ekki hliðholl okkur þar sem veðurstofan spáir hlýnandi upp úr helginni.
Keppnir til Íslandsmeistara verða 2 febrúar á Hvaleyrarvatni. 2 mars á Leirtjörn eða Hafravatni og 15-17 mars á Mývatni. Nú er um að gera að æfa stíft.
Fundum lyktina en ekki bragðið
Fyrir síðustu helgi lofaði ísinn góðu. Þeir alhörðustu voru mættir upp á vötnin kvöld eftir kvöld og farnir að ganga út á hratt frjósandi vötnin. Á fimmtudagskvöldið var kominn 7-10 cm þykkur ís á Hvaleyrarvatni og lofaði allt góðu en þá byrjaði að snjóa. Menn voru vel bjartsýnir og þeir sem gerðu sér ekki grein fyrir einangrunar-áhrifum snjósins enduðu á kafi í vatninu og mun Böggi á KTM200 seint gleyma því. Menn fundu þó ís á grunnri tjörn við Nesjavallaveginn, 7-10 sm þykkur ísinn en eftir 1 klst akstur var búið að spóla niður úr. Menn gátu þó leikið sér í nokkra klukkutíma.
Húsvíkingar eru víst með aðalgræjuna. Toyota pickup með snjótönn framaná. Þeir fara út á vatn sem heitir Botnsvatn og ryðja sér bara leið.
Nú er allur snjór að hverfa og spurning hvort hjólamenn verði bænheyrðir á næstu dögum og fái langan og góðan frostkafla.