Aron Ómarsson vann fyrsta mótoið í MX-Open flokki á Íslandsmótinu í motocrossi sem nú fer fram á Akureyri. Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Einar S. Sigurðarson varð annar, Kári Jónsson þriðji og Gylfi Freyr Guðmundsson fjórði.
Fleiri fréttir verða birtar hér þegar þær berast en frábært veður er á staðnum og aðstæður allar þær bestu.
Greinasafn fyrir flokkinn: Keppnir
Hér er allt um keppnir, keppnishald og úrslit
Aðstoð við uppsetningu hliða á Akureyri
KKA menn eru búnir að vera fullu alla vikuna við að undirbúa brautina
og segja hana vera orðna bestu braut á landinu og lofa frábærri keppni á sunnudaginn. Það hefur hins vegar ekki náðst að setja upp starthlið í brautina. Starthliðin úr Bolaöldu eru þó staðsett fyrir norðan (í sinkhúðun) og mögulega er hægt að setja þau upp á laugardag með hjálp góðra manna. Við auglýsum því eftir aðstoðarmönnum á laugardaginn kl. 10 við að henda hliðunum saman og gera keppnina enn skemmtilegri. Vinsamlegast kommentið við greinina ef þið getið mætt til að hjálpa. Kv. úr góða veðrinu f. norðan.
Muna eftir sendum
Við minnum fólk á að síðasti dagur til að leigja tímatökusenda fyrir motocrosskeppnina á sunnudaginn er á morgun fimmtudag. Eftir það verða engir sendar leigðir. Við viljum biðja fólk um að hringja og panta tímanlega. Kveðja, Nítró
Dagskrá og nýjar reglur
Keppendur athugið að keppnisreglur fyrir Moto-Cross hafa verið birtar og uppfærðar. Ekki er um neinar stórar breytingar að ræða, aðeins smávægilegar breytingar á orðalagi ofl. MX1 flokkur heitir núna MX Open. Einnig hafa tekið að fullu gildi reglur um bakgrunn og lit keppnisnúmera eftir flokkum sem voru leiðbeinandi fyrir árið 2008. Gott er að prenta út reglur og hafa ávalt með sér á keppnisstað ásamt MX dagskrá.
Smellið hér fyrir nýjar reglur
Smellið hér fyrir nýju dagskrána
Hver verður Íslandsmeistari?
Nú er skráningu lokið í fyrstu motocross keppni sumarsins og eru 98 keppendur skráðir. Þátttakan verður að teljast nokkuð góð og er sérstaklega gaman að sjá góða skráningu í MX-open flokkinn. Athyglisvert er að Valdimar Þórðarson er ekki skráður til leiks en hann hefur verið í toppbaráttuinni í mörg ár og í landsliðinu. Tveir sterkir ökumenn eru að koma aftur eftir meiðsli og það eru þeir Gylfi Freyr Guðmundsson og Kári Jónsson sem báðir verða að teljast líklegir til afreka í sumar. Í baráttunni með þeim verða örugglega Aron Ómarsson og Einar Íslandsmeistari Sigurðarson. Ef allir haldast ómeiddir út sumarið er líklegt að spennan haldist fram á síðasta hring.
MX2 verður ekki síður spennandi þar sem Sölvi Sveinsson, Eyþór Reynisson, Heiðar Grétarsson og Viktor Guðbergsson verða að teljast líklegastir til afreka.
Einnig verður að teljast skemmtiegt að sjá nýjan lit í brautinni en allnokkur gul hjól verða á svæðinu.
Hver verður Íslandsmeistari?? Takið þátt í könnuninni hér fyrir neðan
[poll id=“2″]
Skráningarfrestur í fyrsta MX mótið rennur út á miðnætti 26 maí
Það er ótrúlegt hvað margir bíða með að skrá sig alveg fram á síðustu stundu í stað þess að klára dæmið vitandi að þeir ætla sér að keppa. Eða það sem verra er, vegna sofanda hátts, gleyma að skrá sig sér og öðrum til mikilla ama. Því viljum við minna fólk á að skrá sig í tíma á vef MSÍ því skráningarfrestur í fyrsta motocrosskeppni ársins rennur út á miðnætti þriðjudaginn 26 maí. Eftir það er EKKI HÆGT AÐ SKRÁ SIG. Einnig bendum við fólki á að kynna sér reglur vegna keppninnar, sbr. flöggunarreglur, merkingar á hjólum og keppnisreglur svo eitthvað sé nefnt ásamt að prenta út þátttökuyfirlýsingu sem á að vera undirrituð og tilbúin við skoðun á hjólinu. Það er líka áríðandi að fólk sé búið að ganga frá félagsgjöldum í sín félög/klúbba fyrir árið 2009 því annars verður skráning ekki gild í mótið. Ef þig vantar leigusendi, að þá eru þeir til leigu í Nitró og betra að gera ráðstöfun hvað þá varðar í tíma. Að lokum, öll hjól þurfa að vera með gildar ábyrgðatryggingar.