Gunnar Þór Gunnarsson og Aron Reynisson hafa tekið að sér þjálfun á 80cc flokk. Vefurinn óskar öllum púkum á aldrinum 10-15 ára, sem aka um á 80-85cc hjólum til hamingju. Nú er um að gera að mæta á sunnudaginn klukkan 14:15 upp í reiðhöll og taka fyrstu æfinguna. Það verður opið hús til klukkan 17:30 og allir velkomnir.
Ekki er búið að raða upp æfingatímum og enn vantar þjálfara fyrir yngstu púkana, 125cc og 250cc. Áhugasamir hafi samband við stjórn VÍK.
Greinasafn fyrir flokkinn: Krakkar
Fréttir fyrir alla sem eru yngri en 16 ára
Púkabraut
Fyrsta „löglega“ púkabrautin er tilbúin. Brautin er á Broadstreet við Njarðvík. Rétt hjá Grindavíkurafleggjaranum. Tilvalin braut fyrir púka og pæjur frá 8 ára til 13 ára. Síðan er bara að færa sig yfir í stóru brautina þegar færnin verður betri.
Púkaæfingar
Haldnar hafa verið reglulegar æfingar við Lyklafell á þriðjudögum og fimmtudögum í sumar. Hinsvegar verður sú breyting að púkaæfingin flyst á Selfoss á þriðjudaginn. Athugið að svæðið þar hentar ekki þeim yngri.
VÍK hefur einnig fengið staðfestingu frá ÍBR þess efnis að við fáum tíma í Reiðhöllinni í Víðidal fyrir púkana næstkomandi vetur.
Nú er bara að mæta með púkana og leyfa þeim að fá útrás… AR.
Fjölmiðlafár? Ekkert minicross
Mikil tilhlökkun hefur verið hjá öllum keppendum. Á hún eftir að aukast svo um munar fram á laugardaginn. Hætta verður hinsvegar við sýningaratriði 5-11 ára krakka. Ástæðan er;
Fréttatilkynning var send fjölmiðlum fyrr í dag þar sem keppnin og sýningaratriði krakkanna var kynnt. Það liðu ekki margar mínúturnar þangað til Umferðaráð var komið með eintak og þar næst Sýslumaðurinn á Hellu. Sýslumaðurinn hafði samband við VÍH og fékk þær skýringar að um væri að ræða sýningaratriði sem væri ekki að öllu ólíkt því sem gerðist í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Börnin væru á viðurkenndum hjólum, hönnuð af þekktum vélhjólaframleiðendum, sérstaklega fyrir þennan aldurshóp. Einnig þá væri íþrótt þessi viðurkennd og stunduð í öllum Evrópulöndum. Taldi hann þetta skýra málið vel og sagðist vilja smá tíma til að ræða við menn og skoða málið. Síðar í dag kom síðan afsvar þar sem skýrt var tekið fram að sýningarakstur krakka undir 12 ára aldri væri bannaður. Lesa áfram Fjölmiðlafár? Ekkert minicross
Krakkaæfing á eftir
Í dag er miðvikudagur og í sumar hefur tíðkast að mæta með krakkana upp á Lyklafell til æfinga. Vitað er um fullt af krökkum sem ætla að æfa sig upp í Gufunesi og má búast við flestum fyrir klukkan 18:30 í kvöld til að nýta restina af dagsbirtunni. Aksturslýsing: Keyra að húsin á Gufunesi þar sem VÍK var með fundaraðstöðu fyrir nokkrum árum. Keyra vegin vinstra megin við húsið og niður í fjöru. GM.
Púkacross og tjaldstæði
Ef næg þátttaka fæst verður haldin púkakeppni á Ólafsvík sunnudaginn 1. júlí kl. 14. Skráning verður á staðnum. Tjaldstæði fyrir hjólafólk verður á sama stað og í fyrra, rétt hjá motocrossbrautinni. Um kvöldið verður svo sprellað að hætti drullumallara og keppt í ýmsum nýjum greinum á Ólafsvíkingnum 2001. Þeir sem vilja fræðast meira um Færeyska daga á Ólafsvík er bent á slóðina: