Opnað hefur verið fyrir skráningu í Íslandsmótið 2012 í Moto-Cross og Enduro-CC. Alls verða 6 keppnir í Moto-Cross og gilda 5 bestu keppnir keppanda til Íslandsmeistara. 4 keppnisdagar verða í Enduro-CC en tvær umferðir fara fram á keppnisdegi, 3 bestu keppnisdagar keppanda gilda til Íslandsmeistara, 6 umferðir af 8. Ekki er hægt að ógilda 2 slökustu umferðirnar af 8, ógilda verður slakasta árangur samanlagt frá einum keppnisdegi í E-CC.
Skráningu í Íslandsmeistarakeppnir MSÍ líkur alltaf kl: 21:00 á þriðjudagskvöldum vikuna fyrir mótsdag (4 dögum fyrir keppni). Engar undanþágur eru frá þessari reglu. Keppendum sem eru að keppa í fyrsta skipti er bent á að skrá sig vel tímanlega, allavegana 10 dögum fyrir keppni til þess að hægt sé að lagfæra hluti sem geta komið upp og hamlað geta skráningu. Ef keppendur eru í vandræðum með skráningu inn á www.msisport,is skulu þeir hafa samband við formann þess akstursíþróttafélags sem þeir eru skráðir í. Aðrar athugasemdir eða vandræði skal tilkynna með tölvupósti á skraning@msisport.is.
Keppendur eru minntir á að kynna sér reglur MSÍ og hafa ávalt með sér dagskrá og keppnisreglur á keppnisstað.
Keppnisdagatal má sjá hér.
Skráning í liðakeppnir er einnig hafin og má lesa um liðakeppnirnar í Lesa Meira hér fyrir neðan.
Lesa áfram Skráning hafin í Íslandsmótin →