Þá er kominn keppendalisti fyrir MXON sem haldið verður í Donnington park þann 28.sept.
Greinasafn fyrir flokkinn: MXoN
Fréttir af Motocross of Nations
Íslenska MXON liðið
Stjórn MSÍ hefur valið landslið í Moto-Cross til þáttöku á MX of Nations sem fram fer dagana 27. og 28. september á Donington Park brautinni á Bretlandi. Ísland er í 29. sæti á heimslista FIM fyrir MX of Nations keppnina 2008 og munu Íslensku keppendurnir bera eftirfarandi númer.
MX1 = 85, MX2 = 86 og MX3 = 87 Landslið Íslands sem valið hefur verið til þáttöku á MX of Nations 2008 skipa þeir Valdimar Þórðarson á Yamaha YZ-F 450 í MX1 flokki, Aron Ómarsson á Kawasaki 250 KX-F í MX2 flokki, Einar Sigurðarson á KTM 505 SXS-F í MX3 flokki.
Liðstjóri liðsins er Haukur Þorsteinsson.
Team Iceland á MXoN ´08
MX of Nation 2008 fer fram á Donnington Park brautinni á Bretlandi dagana 27. og 28. september. MSÍ mun senda 3 manna landslið á keppnina og munu þeir flokkast í MX1, MX2 og MX Open flokka. FIM alþjóðasambandið hefur gefið út númeralista fyrir keppnina í ár og er Team Iceland með rásnúmer 85 = MX1, 86 = MX2 og 87 = MX Open.
Stjórn MSÍ ásamt Motocross og Enduro nefnd mun velja keppendur til þáttöku í þessa aðra MX of Nation sem Ísland tekur þátt í eftir 3. umferð
Íslandsmótsins í MX sem fer fram á Akureyri um verslunarmannahelgina.
Tilkynnt verður um landsliðshópinn ásamt liðstjóra á vef MSÍ www.msisport.is
miðvikdaginn 6. ágúst.
kveðja,
Stjórn MSÍ
No Fear gefur út MXON DVD
Þá er að koma út diskurinn MXoN: 60 years and a Day frá framleiðendum The Great Outdoors seríunnar. Myndin fjallar um MXoN í Budds Creek þann 23.september síðastliðinn þar sem Ísland keppni einmitt í fyrsta skipti. Viðtöl voru tekin við tvo af íslensku keppendunum við upptökur á myndinni.
Lesa áfram No Fear gefur út MXON DVD
MXON ekki á Írlandi 2008
Í fréttatilkynningu sem gefin var út í gær kemur fram að Motocross of Nations sem átti að vera 28. september 2008 verður ekki á Írlandi eins og til stóð. Ekki er ljóst hvar keppnin verður haldin og er FIM að leita að vænlegum stað í staðinn fyrir Moneyglass Desmene brautina. Ekki voru gefnar frekari útskýringar á breytingunni í tilkynningunni en..
Lesa áfram MXON ekki á Írlandi 2008
MXP
Á einhver nýjasta tölublaðið af MXP (sem er kanadískt motocross tímarit), þar er víst grein um íslenska liðið á MXoN sem gaman væri að lesa. Sendið á vefstjori@motocross.is