Vegna ónógrar þátttöku og dræmra undirtekta að þá hefur MotoMos ákveðið að hætta við áður auglýst bikarmót í íscrossi á Hafravatni laugardaginn 7 janúar. Rétt um tíu keppendur hafa skráð sig til leiks og er ekki stætt á því fyrir klúbbinn að halda keppni gangandi með þeim fjölda. MotoMos þakkar þeim sem skráðu sig fyrir sýndan áhuga og mun endurgreiða að fullu keppnisgjaldið til þeirra sem skráðu sig. Senda þarf upplýsingar um reikningsnúmer og kennitölu á motomos@internet.istil þess að hægt verið að ganga frá endurgreiðslu til keppenda. MotoMos vonar að hjólamenn taki svo betur við sér þegar næsta fyrirhugaða mót verður auglýst og óskar hjólamönnum góðrar hvíldar í vetur og vonar að með hækkandi sól verði menn tilkippilegri.
Greinasafn fyrir flokkinn: MotoMos
MotoMos er Motocrossfélag Mosfellsbæjar
Bikarmót MotoMos í íscrossi á Hafravatni laugardaginn 7 janúar
Laugardaginn 7 janúar ætlar MotoMos að halda bikarmót í íscrossi á Hafravatni. Keppnisgjaldið er mjög hóflegt, eða aðeins 3.500 kr. og mun skráning fara fram á vef MSÍ sem opnar væntanlega seinna í dag eða kvöld. Keppt verður í fjórum flokkum og eru þeir
- 85cc flokkur
- Kvennaflokkur
- Standard flokkur
- Opin flokkur
Gert er ráð fyrir að notast við tímasenda MSÍ. 85cc og kvennaflokkurinn verður keyrður saman. Við munum keyra tvö moto á hvern flokk með sama sniði og á Íslandsmeistaramóti og verður lengd moto-a í öllum flokkum 12 mín + 1 hringur, sem er það sama og í Íslandsmeistaramótinu. Dagskráin hefst kl. 10:00 með skoðun hjóla og tímataka er áætluð að hefjist eigi síðar en kl.10:45. Reiknað er með að síðasta moto dagsins verði lokið um kl.13:30 og verðlaunafhending hefst kl.13:45. Dagskránna má sjá hér fyrir neðan.
Lesa áfram Bikarmót MotoMos í íscrossi á Hafravatni laugardaginn 7 janúar
Landsmót UMFÍ 50+ 2012
Aðalfundur Motomos
Lokahóf MSÍ
Miðasala á MSIsport.is