Vélhjólaíþróttaklúbburinn og Ingvi Björn Birgisson verða í samstarfi í sumar. Ingvi Björn verður með opnar æfingar tvö kvöld í viku þar sem hver sem er getur mætt og fengið tilsögn í motocross-i. Æfingarnar verða á þriðjudagskvöldum og fimmtudagskvöldum á milli kl. 19:00 og 20:30. Hægt verður að kaupa sig inn á allar æfingar sumarsins í einu gjaldi og svo verður hægt að kaupa klippikort og mæta á æfingar af og til eins og hentar.
Æfingarnar ættu að hefjast fljótlega upp úr því að svæðið opnar. Við munum auglýsa það vel og rækilega.
Þeir sem hafa áhuga á að tryggja sér kort geta haft samband við Pétur í síma 693-3777.
Ingvi Björn er flestu motocross-áhugafólki kunnur, en fyrir þau sem hafa ekki heyrt af honum er hérna það helsta sem hann hefur afrekað:
2008
1. sæti í Jónsmessumóti í MX (motocross) 85cc flokk.
5. sæti í Íslandsmóti í MX 85cc flokk þar sem Ingvi tók þátt í 4 keppnum af 5.
2009
Besti nýliði í enduro 2009.
2. sæti í Íslandsmótinu í enduro – 85cc flokk
3. sæti í Íslandsmóti í MX – 85cc flokk (samanlagt tví- og fjórgengishjól)
1. sæti í Íslandsmóti í MX – 85cc flokk – tvígengishjól
Lesa áfram Opnar motocrossæfingar – Bolaalda sumarið 2016 →