Eru ekki allir í ræktinni á fullu til að gera sig klára fyrir sumarið? VÍK er með (kannski) ruglaðar hugmyndir um breytingar. Ætlar þú að vera með? Það styttist í skráningu. Fylgist með hér á síðunni. Þið kannski vitið ekki hvað er verið að tala um?
Eru ekki allir í ræktinni á fullu til að gera sig klára fyrir sumarið? VÍK er með (kannski) ruglaðar hugmyndir um breytingar. Ætlar þú að vera með? Það styttist í skráningu. Fylgist með hér á síðunni. Þið kannski vitið ekki hvað er verið að tala um?
Frábært veður. Frábært fólk. Frábær skemmtun. Frábærir vinningar. Frábærar veitingar.
Er hægt að hafa þetta betra?
Þökkum öllum kærlega fyrir komuna og þáttökuna. Við vonumst til að geta glatt og styrkt félaga Ævar Svein, bæði andlega og peningalega eftir þennan frábæra dag.
Ekki síður þökkum við þeim sem aðstoðuðu okkur með glæsilega vinninga til handa afreksmönnum þeim sem tóku þátt.
Snæland Videó gaf verðlaunapeningana.
Púkinn Grensásvegi gaf glæsileg verðlaun, gleaugnatöskur, gleraugu, hlífðaehettu og spil.
Landvélar gáfu SKF gæða smurfeiti.
Kistufell Höfða gáfu glæsilegan smurolíupakka.
Vinningshafar dagsins:
Vetradekkja flokkur: 1. sæti Pétur Pétursson. 2. Sæti Viggó Ö Viggósson. 3. Sæti Óliver Sverrisson
Opinn flokkur: 1. Sæti Svavar Friðrik Smárason. 2. sæti Heimir Barðason. 3. sæti Jón Viðar Sigurgeirsson.
Kvenna flokkur: 1. Sæti Björk Erlingsdóttir. 2. Sæti Bína. 3. sæti. Sú brjálaða Bína. ( Hún er allstaðar þessi Bína )
Ekki má gleyma tilþrifaverðlaununum fyrir flottustu dettuna. Viggó Örn Viggósson hlaut þau fyrir frábæralega útfærða dettu.
Takk fyrir þáttökuna og stuðninginn.
Stjórn VÍK.
ATH: Rúv mætti á svæðið og myndaði, fylgist vel með fréttum og íþróttum.
Nú meigum við í stjórn skammast okkar. Við gleymum alveg að minnast á Barnastarfið sem er í fullum gangi þó úti sé kallt og engar drullumallarabrautir til að keyra í.
Krakkarnir eru búin að vera á fullu í Reiðhöllinni í vetur og svaka fjör hjá þeim. Það mættu margir taka krakkana til fyrirmyndar.
TÍMARNIR: Eru á Sunnudögum í Reiðhöllinni Víðidal. Það er nægt pláss fyrir alla sem vilja mæta. ATH þjálfarar taka við greiðslu á staðnum.
50cc frá 17 til 18, 65cc 18-19, 85cc 19 til 20
STYRKTAR – ÍSAKSTURSMÓT Á RAUÐAVATNI. LAUGARDAG 15.02.2014
Þar sem góður félagi úr sportinu, Ævar Sveinn Sveinsson, lenti í alverlegu slysi nýverið þá mun öll innkoma frá bikarkeppninni renna til Ævars . Við hvetjum sem flesta til að skrá sig þannig að sá styrkur sem keppendur veita verði sem veglegastur.
Þeir sem vilja styrkja gott málefni en eiga ekki trella-ísdekk eða ádrepara, geta „skráð sig“. Og/ eða greitt inn á reikning félagsins. Taka fram nafn því allir sem skrá sig verða með í styrknum. Senda staðfestingu á vik@motocross.is
Vélhjólaíþróttaklúbburinn
Engjavegi 6
104 Reykjavík
Kt. 480592-2639
Reikningsnúmer 537 – 26 – 501101
Veðurspá er eins góð og hægt er að biðja um og vonandi höfum við samið við rétta veðurguði.
Fyrirkomulag:
Tvær samsíða brautir, tveir keppendur fara samtímis af stað í hvora braut. Keyrðir verða 2-4 hringir í hvert sinn og tekinn tími. Fjöldi hringja fer eftir keppendum. Fjöldi híta fer eftir aðstæðum. Sigurvegara eru þeir sem ná besta tíma. Að minnsta kosti verða keyrðar tvær umferðir þannig að allir keyri báðar brautir. Verðlaunapeningar verða veittir fyrir 1. 2. og 3. sæti.
Flokkar:
Opinn flokkur nagladekk 125cc og stærri. Opinn flokkur skrúfudekk ( eða það sem hentar ) 125cc og stærri. Opinn flokkur kvenna.
Tími: Mæting, skráning, skoðun kl 09.00 höfum leyfi til að vera á ísnum til kl 14.00 Allir keppendur fá amk 2 hringi til að prufa brautina. Síðan verður farið í röð eftir hópum.
Verð: 3000 kr, greitt á staðnum. Posi verður á staðnum, seðlar MJÖG velkomnir.
Bensínáfylling bönnuð á og við Rauðavatn. Koma með bensín á hjólunum.
ATH!!!! Neyðar ádrepari og tryggingar á hjóli skilyrði fyrir þátttöku.
Fyrirvari: Ef veðrið hamlar keppni þá verður keppni frestað, fylgist með hér á síðunni sem og á FB.
Gott væri fyrir okkur ef áhugasamir keppendur sendi á okkur forskráningu, léttir okkur verulega lífið.
Senda má á : oli.thor.gisla@gmail.com , sms í 6903500, skrá sig á FB eða mæta á staðinn.
Stjórn VÍK
AÐ: Stjórn VÍK sé enn með þá hugmynd að hafa skemmtikeppni á Rauðavatni.
AÐ: Stjórn VÍK sé búin að fá leyfi fyrir keppni N.K Laugardag.
AÐ: Stjórn sé búin að vera í löngum samningarviðræðum við veðurguðina.
AÐ: Vonandi hafi það ekki bara verið hljómsveitin Veðurguðirnir.
AÐ: Ísinn sé sléttur og flottur.
AÐ: Ísinn sé jafnvel botnfrosinn.
AÐ: Þetta skýrist allt á morgun.
Nennir einhver að vera með í þessum fíflalátum?
Óli G.
Þær hörmulegu fréttir bárust í dag að Ævar Sveinn Sveinsson félagi okkar margra og vinur hafi slasast alvarlega í vinnuslysi í dag. Samkvæmt fregnum féll kappinn úr talsverðri hæð og hlaut alvarlega áverka á ökklum, hrygg og mjaðmagrind. Jákvæðu fréttirnar eru þó þær að hann hafi borið sig vel í dag og virðist hafa fulla tilfinningu í fótum og að hann hafi farið í aðgerð seinnipartinn eða í kvöld.
Ævar er frábær félagi og sannkallaður gleðigjafi hvar sem hann kemur og því viljum biðja alla um að senda honum hlýja strauma og batakveðjur þannig að við sjáum hann sem allra fyrst aftur á fullri ferð. Fyrir hönd VÍK sendum við Ævari okkar bestu batakveðjur og knús.