1. umferðin í enduro er um næstu helgi og brautin lofar góðu

Við renndum í Sólbrekku með borða fyrir Jóa og tókum brautina út í leiðinni. Þetta verður bara skemmtilegt, brautin liggur þvers og kruss um svæðið. Startið verður á startsvæðinu og þaðan liggur brautin inn í og þvert yfir krossbrautina á nokkrum stöðum á skemmtilegan hátt. Þaðan í gegnum moldarkafla og þúfur af öllum stærðum með viðkomu í háum hólum sem umkringja brautina. Fullt af brölti og krefjandi leiðum en fært fyrir alla og vel það. Enn á eftir að setja borða á stikur og í beygjur á nokkrum stöðum og týna grjót hér og þar. Jói verður með vinnukvöld í vikunni og væri mjög sáttur ef menn koma og hjálpa til – þeim mun fleiri þeim mun minna mál. Og btw, krossbrautin er frábæru standi og því um að gera að renna suðureftir og hjálpa til og hjóla smá í leiðinni. Svo er bara að muna að skrá sig fyrir kl. 21 á þriðjudaginn (ekki klikka á því að mánudagurinn er frídagur 🙂

Og hér er hjálmavideo frá Jóa – reyndar e-h vesen á hljóðinu í upphafi en bíddu aðeins og þá kemur tústrókurinn inn

http://www.youtube.com/watch?hl=en&gl=US&client=mv-google&v=bosUBFu1zoM&feature=em-upload_owner&nomobile=1

Landsmót UMFÍ

Nú líður að Landsmóti UMFÍ sem haldið verður á Selfossi dagana 4. – 7. júlí, keppt verður í motocrossi að þessu sinni og vonumst við í motocrossdeild UMFS eftir því að sjá sem flesta af toppökumönnum landsins keppa. Keppni á landsmóti er frábrugðin öðrum motocrossmótum þar sem að bæði er verið að keppa sem einstaklingur en einnig fyrir sitt héraðssamband en það eru einmitt héraðssamböndin sem velja sína þáttakendur en hvert héraðssamband hefur rétt til að senda fjóra karla og fjórar konur  til að keppa í motocrossi. Þá kemur upp spurning um flokkaskiptingu en hún er afar lítil vegna þess að einungis er keppt í einum karlaflokki og einum kvennaflokki þannig að þarna er svo sannarlegas hægt að segja að hér sé hægt að krýna besta karl landsins og bestu konu landsins í motocrossi. Verðlaunað er bæði fyrir einstaklingsárangur en einnig vinna þeir sem lenda í tíu efstu sætunum í hvorum flokki sér inn stig sem leggjast við heildarstigasöfnun þeirra sambands og mun lokastigafjöldi hvers sambands ráða úrslitum með það hverjir verða landsmótsmeistarar.

Lesa áfram Landsmót UMFÍ

Frá MSÍ: Íslandsmótaröðin í Enduro CC 2013

Íslandsmótið í Enduro CC mun hefjast með 1. og 2. umferð laugardaginn 22. júní í Sólbrekku við Grindavík. Kalt vor hefur heldur betur sett strik í reikninginn hvað varðar keppnishaldið í Enduro CC þetta árið og aflýsa varð fyrstu keppnishelginni sem átti að vera í byrjun maí. Önnur keppnishelgin átti svo að vera á Akureyri 15. júní en vegna ástandsins á akstursíþróttasvæði KKA vegna bleytu hefur einnig þurft að aflýsa þeirri keppni. Mótaröðin mun því byrja með 1. og 2. umferð laugardaginn 22. júní, 3. og 4. umferðin fer svo fram við Egilstaði 27. júlí, 5. og 6. umferðin á Suðurlandi í nágrenni Reykjavíkur (+100 km.) 31. ágúst og 7. og 8 umferðin mun svo fara fram á Akureyri.

Eins og í fyrra munu 3 bestu keppnisdagar gilda til Íslandsmeistaraúrslita, sem þýðir að keppendur geta sleppt einum keppnisdegi eða keppt í öllum keppnum ársins og slakasti árangur telur ekki til endanlegra úrslita. Stjórn MSÍ harmar þær aðstæður sem upp hafa komið en því miður getum við lítið gert þegar kemur að því að eiga við æðri máttarvöld. Það er von stjórnar MSÍ að við sjáum ykkur sem flest á komandi keppnistímabili og að við eigum eftir að eiga saman frábært Enduro CC sumar þrátt fyrir þessa erfiðleika við að byrja nýtt spennandi tímabil.

Grillpartý í Bolöldu á miðvikudag kl 18:15

Við hjá Motocross skóla VÍK ætlum að vera með grillpartý fyrir þá sem hafa verið að æfa hjá okkur í sumar, grilla pulsur og hafa það gott, fá krakkana til að kynnast aðeins betur. Endilega takið  hjólin með svo krakkarnir geti tekið nokkra hringi. Báði hópar mæta á sama tíma eða 18:15. Nýliðar að sjálfsögðu velkomnir líka. Kv, Helgi Már, Gulli & Pálmar.

Opnunartímar Bolaöldu 2013

Opnunartímar brauta í Bolaöldu árið 2013 eru eftirfarandi:

  • Laugadaga – Sunnudaga 10 – 17.
  • Mánudaga    LOKAÐ
  • Þriðjudaga    17 – 21
  • Miðvikudaga 17 – 21
  • Fimmtudaga    17 – 21
  • Föstudaga    17- 21

Opið á morgnana, virka daga 8 – 13
ATH ÁRÍÐANDI  Ef enginn strafsmaður er á svæðinu þá skal varlega farið. Ökumenn eru algjörlega á eigin ábyrgð á morgnana.

  • Almennt félagsgjald 5.000 kr. – óbreytt á milli ára
  • Nýtt – Félags- og brautargjald sameinað í eitt fyrir allt árið eða aðeins 12.000 kr. sem gildir í allar brautir VÍK og er hægt að greiða með valgreiðslu fyrirkomulagi og greiða 1.000 kr. á mánuði í tólf mánuði, 2.000 kr. í sex mánuði eða með eingreiðslu (tímabil 1 mars 2013 til 1 mars 2014)
  • Nýtt – Frítt fyrir 85cc tvígengis/150cc fjórgengis hjól og minni
  • 50% afsláttur af æfingargjöldum hjá VÍK í sumar og frítt foreldrakort fylgir með
  • Stakur miði í braut 1.000 kr. í bæði motocross og endurobrautir

Nánari upplýsingar hér

Drullugaman í 1. umferð Íslandsmótsins í Motocrossi á Selfossi

Fyrsta umferðin í Íslandsmótinu í Motocrossi fór fram á Selfossi í dag. Það er óhætt að segja að veðrið hafi spilað stórt hlutverk í keppninni í dag en miklar rigningar undanfarna daga og í nótt gerðu keppnina að drullukeppni fyrir allan peninginn. Selfyssingar brugðu á það ráð að stytta brautina fyrir keppni og klippa út blautasta kaflinn sem bjargaði heilmiklu. Það breytti þó ekki því að brautin var á floti og hrikalega erfið. Keppendur kvörtuðu þó ekki og skemmtu sér stórkostlega.

Kári Jónsson, Íslandsmeistari í Enduro í fyrra var eins og á heimavelli og sigraði daginn í MX-Open á fullu húsi stiga en Viktor Guðbergsson, Íslandsmeistarinn í Motocrossi 2012,  varð í öðru sæti. Lesa áfram Drullugaman í 1. umferð Íslandsmótsins í Motocrossi á Selfossi

Bolalada