Siðareglur VÍK
Siðareglur þessar gilda fyrir alla félagsmenn sem til lengri eða skemmri tíma starfa fyrir félagið. Siðareglurnar gilda fyrir alla starfsemi í nafni VÍK jafnt á svæði félagsins sem utan þess.
Stjórnendur VÍK fylgja verklagsreglum ÍBR varðandi ráðningu starfsmanna, þjálfara og annarra sem koma að starfi félagsins og kynna siðareglurnar fyrir þeim og iðkendum.
1. grein. Frumskylda
Félagsmenn hafa hagsmuni félagsins að leiðarljósi í orðum og athöfnum og eru félaginu til sóma í öllu starfi á þess vegum.
2. grein. Samskipti
Félagsmenn bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, umhverfi og mannvirkjum. Niðurlægjandi framkoma svo sem einelti, ofbeldi, kynferðisleg áreitni, illt umtal og ósæmilegar vígsluathafnir er ekki liðin innan félagsins.
3. grein. Jafnræði
Félagsmenn stuðla að jöfnum tækifærum félagsmanna og mismuna ekki vegna kyns, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs, fötlunar, þjóðernis, trúarbragða, skoðana eða annarrar stöðu.
4. grein. Trúnaður
Félagsmenn gæta trúnaðar gagnvart einstaklingum um atriði sem þeir verða áskynja í starfi eða við iðkun hjá félaginu. Þeir gæta þess að persónuupplýsingar séu einungis notaðar í málefnalegum tilgangi og að aðgengi að slíkum upplýsingum takmarkist af því.
5. grein. Áreiðanleiki
Félagsmenn misnota ekki aðstöðu sína í þágu einkahagsmuna. Félagsmenn veita engum sérstaka fyrirgreiðslu á grundvelli persónulegra tengsla.