STJÓRN VÍK
Núverandi stjórnar & nefndarmenn.

Pétur Smárason
Formaður MX-Brauta
& Stjórnarmaður
Pétur er límið sem heldur okkur saman, hann er uppfullur af eldmóð og brennur fyrir starfið og það er óhætt að segja að án hans værum við ekki þar sem við erum í dag. Pétur hefur setið á mótorhjóli frá unga aldri en eyðir nú frístundum sínum í traktór til að betrumbæta brautir á Bolaöldu svæðinu jafnframt er hann frábært keppnisstjóri.

Jónatan Þór Halldórsson
Formaður Umhverfisnefndar
Jónatan er Bolaalda og blæðir fyrir Bolaöldu, slóðarnir og MX-Brautirnar okkar eiga hug hanns og hjarta. Einnig hefur hann gífurlegan áhuga á öllu því stafi sem viðkemur svæðinu.

Daði Þór Halldórsson
Stjórnarmaður
Daði er okkar helsti Vélamaður og er heilinn á bakvið stærri framkvæmdir á svæðinu, jafnframt því að vera hönnuðurinn og smiðurinn af okkar ægilega herfi. Hjartað slær Enduro en elskar að búa til MX-Brautir.

Ásta Petrea Hannesdóttir
Formaður Kvenna nefndar
& Varamaður í stjórn
Ásta er þjálfari, keppandi og hefur lagt grunninn af kvennastarfi VÍK sem er að blómstar um þessar mundir. Á meðan hún er ekki að æfa, þjálfa eða keppa þá er hún í því að eflastarfið fyrir konur í VÍK.

Guðbjartur Ægir Ágústsson
Formaður Barana/unglinga-starfs
& Stjórnarmaður
Guðbjartur lítur svo á að grasrótin sé grunnurinn af því stafi sem við vinnum í VÍK. Guðbjartur er maðurinn á bakvið skipulagið á okkar ungliðastafi.

Theodora Björk Heimisdóttir
Endurskoðandi
Flestir þekkja hana sem Teddu, en Tedda er okkar endurskoðandi. En hún er líka miklu meira það fáar konur hafa lagt eins mikið af sér til að efla sportið á Íslandi líkt og Tedda hefur gert, grjót harður hjólari og keppandi.

Garðar Atli Jóhannsson
Formaður Hard Enduro nefndar
Gatli er okkar maður þegar það kemur að Hard-Enduro, Gatli er heilinn á bakvið Víkingar Bolaalda og blæðir fyrir Bolaöldusvæðið.

Einar Sverrir Sigurðsson
Endurskoðandi
Einar sennilega hraðasti og harðasti endurskoðandi á reikningum sem finnst. Það væri sennilega hægt að skrifa nokkur bindi af afrekum hanns í sportinu enda verið keppandi síðan menn fóru á keppa á torfæruhjólum.

Magnús Árnason
Formaður Markaðs & Kynningar nefndar
Maggi Árna er okkar maður þegar það kemur að markaðs og kynningarmálum enda hokinn af reynslu í þeim efnum.

Arnar Snær Rafnsson
Formaður stjórnar
Arnar "El Capitan" er maðurinn sem heldur stjórinni á jörðinni.